Reglur á Íslandsmeistaramóti í PlayerUnknown's Battlegrounds
Hér að neðan koma fram reglur á Íslandsmeistaramóti í PlayerUnknown's Battlegrounds (pubg) 19-20. Maí 2018. Með skráningu í mótið staðfestir þáttakandi að hann hafi lesið þær og samþykkt með öllu.
Mikilvægt er að allir fari eftir reglum mótsins til þess að tryggja góða framgöngu og jákvæða upplifun á mótinu. Keppendur verða að fylgja reglum sem og ákvörðunum stjórnenda mótsins sem eru á vegum TEK eSports og geta ákvarðanir þeirra verið frábrugðnar reglum mótsins ef talin er þörf á og meta stjórnendur það hverju sinni.
Þáttakendur heimila með skráningu í mótið TEK eSports, Tölvutek og ZOWIE by BenQ að nota nöfn eða gengil (avatar) þeirra auk mynd- og hljóðefni sem safnast af þeim á meðan móti stendur og er TEK eSports, Tölvutek og ZOWIE by BenQ heimilt að nota það efni á meðan og eftir að móti lýkur.
1. Leikmannaréttindi
Til þess að geta tekið þátt í íslandsmeistaramótinu þarf að uppfylla eftirfarandi kröfur:
1. Vera skráður sem Íslenskur ríkisborgari (eða fyrrverandi) eða hafa löggilta búsetu á Íslandi.
2. Eiga og nota virkan PUBG notanda í góðu standi (BattleEye í lagi)
3. Keppendur undir 16 ára aldri þurfa að senda skriflegt leyfi frá foreldra eða forráðamanns ásamt nafni og símanúmeri á leyfi@tek.is
1.1 Spilarar og lið
Stjórnendur geta vísað frá eða krafist breytinga á liðs- eða notandanafni m.a. ef eftirfarandi á við:
1. Nöfn eru talin óeðlileg eða bull.
2. Nöfn eru talin móðgandi eða niðrandi.
3. Nöfn sem eru talin svipa um of til nafns annars spilara eða liðs.
Spilarar og lið verða að keppa undir sömu nöfnum og þeim sem voru notuð í skráningu.
Aðeins skráðir liðsmenn hafa leyfi að spila fyrir lið. Óheimilt er að nota óskráðan spilara eða aðgang á mótinu.
Spilarar geta aðeins spilað með einu liði í mótinu.
1.2 Útgáfa leiks
Allir spilarar verða að setja upp nýjustu útgáfu af leiknum. Uppfærslur verða að vera uppsettar áður en mótið hefst, þannig að tafir verði í lágmarki.
1.3 Tæknileg vandamál
Lið bera ábyrgð á eigin vélbúnaði og internet tengingu. Leikir verða ekki endurspilaðir vegna tæknilegra mála að öllu jöfnu. Ef ólag er hjá spilara eftir að upphitunartíma er lokið getur leikur þurft að hefjast þótt ólag sé enn til staðar.
1.4 Fjöldi spilara
Pláss er fyrir 256 spilara í 4 grúppum og allt að 16 lið í hverri grúppu.
1.5 Frávísun spilara / liðs
Til að halda móti eins skilvirkt og mögulegt er getur stjórnandi þurft að dæma spilara eða lið úr keppni. Þetta verður aðeins gert í þeim tilvikum þar sem lið með viljandi hætti stöðvar eða reynir að hafa óeðlileg áhrif á spilun leiks eða hefur áhrif á einhvern annan þátt mótsins.
Ef spilari eða lið verður uppvíst um einhversskonar svindl í leiknum er þeim vísað frá.
Notkun galla, glitches eða villna í leiknum er stranglega bönnuð og ef lið eða spilari er uppvís að slíku verður frávísun framkvæmd.
1.6 Breytingar á móti
Stjórnendur TEK eSports geta ákveðið breytingar á móti án fyrirvara þar á meðal tímasetningu móts, leikja og tegund móts sem og hætt við mót en margvíslegar aðstæður geta komið upp sem þarf að bregðast við jafnóðum.
2. Skipulag leiks
Upplýsingar um hvernig þátttakandi fær aðgang að nafni á server og password. Upplýsingar um Server name og Password til þess að tengjast "Custom Server" verður veitt í gegnum chat lobby/texta rás inn á Toornament síðunni. Til þess að tengjast chat lobby-inu mun birtast lengst til hægri á síðunni linkur sem heitir "My Matches" og þar að neðan nafnið á grúppuni þinni og inn í því mun birtast lengst til hægri á síðunni linkur sem heitir "Lobby" sem hægt er að tengjast til þess að fá upplýsingar Server name og Password.
Lið verða sett í sér “slot” sem þau eiga að fylgja þegar kemur að tengingu á server. Fimmtudaginn 17.05.2018 kemur út listi fyrir hverja grúppu sem er með upplýsingar hvaða "Team slot" hvert lið á að tengjast eftir að hafa tengst við serverinn. Lið/leikmaður sem ekki fylgja þessum reglum verður "kick-að" út úr serverinum.
Til að fylgjast með hvenær leikur þíns liðs hefst mun birtast lengst til hægri á síðunni linkur sem heitir "My Matches" og þar verða upplýsingar um leik þíns liðs og í hvaða grúppu þið eruð í, hver grúppa er með settan tíma. Þessi linkur verður tiltækur miðvikudaginn 16.05.2018 .
Upplýsingar um hvenær hver lota byrjar fer í gegnum "Lobby" (Chat lobby fyrir hverja grúppu inn á Toornament) og Discord serverinn okkar þar sem verður settur tími og ef leikmenn tengjast ekki inn á serverinn fyrir þennan tíma þá verður byrjað án þeirra.
2.1 Undirbúningur leiks
Ætlast er til að spilari leysi öll vandamál sem kunna að eiga sér stað áður en leikur hefst. Tengingar eða vélbúnaðarvandamál í miðjum leik geta leitt til þess að lið verði fjarlægt úr mótinu.
2.2 Engin mæting
Ef þátttakandi er ekki mættur eða ekki leikfær á upphafstíma leiks getur hann verið fjarlægður úr mótinu.
2.3 Fjöldi leikmanna
Hvert lið þarf að hefja keppni með fjórum leikmönnum.
2.4 Aftenging frá leik
Ef spilari eða lið aftengist er heimilt að halda áfram að spila leik takist að endurtengjast innan þess ramma sem leikurinn býður upp á. Einnig getur lið haldið áfram keppni ef spilari nær óvænt ekki aftur tengingu en verða að vera að lágmarki 3 í þeim eða næsta leik.
ATH! Ef lið eða spilari ákveður að hætta í mótinu eftir einn eða fleiri leiki getur það haft áhrif á samþykkt skráningar þeirra í næstu mótum TEK eSports en stjórnendur meta það eftir hverju tilfelli.
2.5 Endurræsing á leik
Ákveðið getur verið að endurræsa leik ef aftenging eða töf á tengingu kemur fram innan fyrstu mínútum leiks (upphitun/warm-up) hjá spilara eða annað vandamál sem hefur áhrif á fleiri spilara.
2.6 Niðurstöður
Allar niðurstöður verða settar inn af stjórnendum TEK eSports.
2.7 Samskipti og hjálp
Hægt er að hafa samband við og fá hjálp hjá stjórnendum TEK eSports á Discord þjóni
https://discord.gg/UXFHdpN
2.8 Twitch straumur
Allir leikir verða streymdir á Twitch rás TEK eSports:
https://www.twitch.tv/tolvutekesports
2.9 Replays
"Replays" verða að vera virk inn í "in-game settings" og verða stjórnendur TEK eSports að geta beðið um það hvenær sem er á meðan móti stendur og í tvær vikur eftir móts lok. Replays af Íslandsmeistaramóti TEK eSports í PUBG þurfa að vera vistuð í tvær vikur frá mótalokum. Til þess að varðveita þau verða þau að vera vistuð hjá spilara eða upphala þeim á geymsludrif hjá TEK eSports.
Til að finna replays ýtirðu á "Windows Key + R" og skrifar
"%localappdata%\TslGame\Saved\Demos". Smelltu á Í lagi, sem opnar möppu sem inniheldur öll replays. Zip-aðu möppuna sem er með rétt replays og settu hana í "TEK eSports" möppu á harða disknum. Ef það verður óskað eftir þínum replays, þá munu stjórnendur TEK eSports hafa samband við þig.
3. Stigagjöf
Veitt verða stig fyrir 16 efstu sætin auk þess sem kill veitir 7 stig sjá stigatöflu hér að neðan.
3.1 Stigatafla
1 sæti= 190 PTS
2 sæti= 158 PTS
3 sæti= 132 PTS
4 sæti= 111 PTS
5 sæti= 94 PTS
6 sæti= 80 PTS
7 sæti= 68 PTS
8 sæti= 57 PTS
9 sæti= 47 PTS
10 sæti= 38 PTS
11 sæti= 30 PTS
12 sæti= 23 PTS
13 sæti= 17 PTS
14 sæti= 12 PTS
15 sæti= 8 PTS
16 sæti= 5 PTS
Önnur stig = 7 PTS per kill
3.2 Leikjastillingar
Leikjasnið: Squad
Leikjaþjónn: Evrópskur
Erangel:
Cosmetics Margföldun: 0x
AR Margföldun: 1.5x
Crate Drop: Sjálfgefið
Hring stillingar: Keppnisstillingar (auzom)
Red Zone: Slökkt á
Veður: Sunny
Sjónarhorn: Fyrstu Persónu Sjónarhorn (FPP)
Flare gun: Slökkt á
Miramar:
Cosmetics Margföldun: 0x
AR Margföldun: 1.5x
Scope Margföldun: 1.2x
Crate Drop: Sjálfgefið
Hring stillingar: Keppnisstillingar (auzom)
Red Zone: Slökkt á
Veður: Sunny
Sjónarhorn: Fyrstu Persónu Sjónarhorn (FPP)
Flare gun: Slökkt á
Fjöldi spilaðra leikja í undanúrslitum = 3 (2x Erangel, 1x Miramar)
Fjöldi spilaðra leikja í úrslitum = 5 (3x Erangel, 2x Miramar)
Við hvetjum ykkur til að haga ykkur með prýði og fylgja mótsreglum og skilaboðum frá stjórnendum og að lokum hlökkum við mikið að hefja mót með ykkur! :)
Kær kveðja,
Stjórnendur TEK eSports